Alþingi kemur saman til framhaldsfunda í dag klukkan þrjú til að fjalla um fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir flugvirkja sem starfa hjá Icelandair. Þetta kemur fram á vef Alþingis.
Flugvirkjar fóru í sólarhringsverkfall á mánudaginn og þá þurfti að fella niður 65 flugferðir. Verkfallið hefur alvarlegar afleiðingar fyrir stöðu þjóðarbúsins enda er ferðaþjónusta ein mest gjaldeyrisskapandi atvinnugrein Íslendinga um þessar mundir. Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra mun því væntanlega leggja fram frumvarp sem bannar verkfallsaðgerðir flugvirkja.