Dagana 23-25. október 2019 verður alþjóðlega hitaveituráðstefnan „Sustainble District Energy Conference“ haldin í Reykjavík. Ráðstefnan fer fram í fyrsta skipti hér á landi en tilgangur hennar er að vera samstarfsvettvangur Evrópuþjóða í rannsóknum og þróun á endurnýjanlegum orkugjöfum. Það er Samorka, samtök orku- og veitufyrirtækja á Íslandi sem halda ráðstefnuna í samstarfi við íslenska jarðvarmaklasann, Iceland Geothermal.

Samhliða ráðstefnunni verða verðlaunin „Global District Energy climate Awards“ veitt í sjötta skipti. Verðlaunin eru veitt þeim sem þykja skara framúr í vinnslu og nýtingu á endurnýjanlegri orku. Það eru samtökin „Euroheat & Power“ og „EGEC (European Geothermal Energy Concil)“ sem standa að verðlaununum en bæði samtökin hafa það að markmiði að auka samkeppnishæfni endurnýjanlegra orkugjafa.

Það eru 2-300 þátttakendur væntanlegir til landsins vegna ráðstefnunnar og verðlaunanna sem verður haldin á Hilton Reykjavík Nordica. Á síðasta ári fór verðlauna afhendingin fram í Doha í Qatar.

Páll Erland, framkvæmdastjóri Samorku fagnar því að þessi alþjóðlegur viðburður sé haldinn á Íslandi, sem sé í fararbroddi í nýtingu á endurnýjanlegri orku í heiminum.

Paul Voss, framkvæmdastjóri Euroheat & Power sagði þrennt hafa ráðið vali Íslands fyrir verðlaunin 2019. Í fyrsta lagi vegna forystu Íslands í nýtingu á endurnýjanlegri orku, í öðru lagi vegna mikils áhuga hér á landi fyrir verðlaununum og í þriðja lagi sé töluvert sem fulltrúar annarra þjóða geti lært af Íslendingum.

Þorsteinn Örn Guðmundsson framkvæmdastjóri Meet in Reykjavík segir komu ráðstefnunnar og verðlaunanna enn eina birtingarmynd þeirrar forystu sem Íslendingar hafa tekið í notkun og nýtingu á grænum og endurnýjanlegum orkugjöfum.