Útflutningur var um það bil fimmtungi minni í október en á sama tíma í fyrra, reiknað á föstu gengi. Samdrátturinn skýrist þó aðallega af miklum útflutningi skipa og flugvéla í október 2007. Álútflutningur tvöfaldaðist milli ára, reiknað á föstu gengi, og nam hann 20,5 milljörðum króna í október að því er kemur fram í Morgunkorni Glitnis.

Útflutningstekjur af sjávarafurðum voru hins vegar um 20% minni í síðasta mánuði en á sama tíma í fyrra á föstu gengi og námu þær 18 milljörðum króna.

Í Morgunkorni Glitnis er bent  á að áliðnaðurinn hefur nú fest sig í sessi sem stærsta einstaka útflutningsgrein Íslendinga, mælt í útflutningstekjum, en tekjur af álútflutningi hafa verið meiri en tekjur af sjávarútvegi samfleytt síðan í maí. Hér verður þó að hafa í huga að innfluttur hráefniskostnaður er til muna meiri í áliðnaði en sjávarútvegi auk þess sem hagnaður af álvinnslu rennur til erlendra eigenda, og síðarnefnda greinin hefur því ennþá vinninginn hvað varðar hreinar gjaldeyristekjur.