Alcan á Íslandi (Álverið í Straumsvík) hlaut í gær viðurkenningu frá Vátryggingafélagi Íslands fyrir góðan árangur í öryggismálum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Alcan en Guðmundur Örn Gunnarsson, forstjóri VÍS, afhenti Rannveigu Rist, forstjóra Alcan á Íslandi viðurkenninguna í Straumsvík í gær.

Guðmundur Örn segir álverið hafa náð framúrskarandi árangri í öryggismálum á undanförnum árum og VÍS væri bæði ljúft og skylt að sýna með áþreifanlegum hætti að eftir þessum árangri væri tekið.

„Við erum að sjálfsögðu stolt af góðum árangri og afar þakklát fyrir þessa viðurkenningu, en hún er okkur þó fyrst og fremst hvatning til að sofna ekki á verðinum og halda áfram á sömu braut,” segir Rannveig Rist forstjóri ISAL í tilkynningunni.

Sem kunnugt er hafa rúmlega þrjár milljónir vinnustunda verið unnar á athafnasvæði álversins í Straumsvík án þess að orðið hafi alvarlegt vinnutengt slys og er sá árangur með því allra besta sem þekkist í álverum í Evrópu.