Hagnaður Rio Tinto Alcan á Íslandi var tæpar tvær milljónir Bandaríkjadollara eða 265 milljónir íslenskra króna í fyrra, samkvæmt ársreikningi fyrirtækisins.

Tekjur fyrirtækisins námu 494 milljónum dollara á sama tíma og jukust um 9% frá fyrra ári. Eiginfjárhlutfall fyrirtækisins var 87% í lok árs 2014.

Handbært fé jókst um 993.091 dollara á árinu og var um 3,9 milljónir dollara í lok síðasta árs eða um 521 milljón íslenskra króna.