Reykjanesklasinn ehf. gekk nýverið frá kaupum á byggingum Norðuráls í Helguvík. Húsnæðið sem er um 25 þúsund fermetrar að grunnfleti hefur staðið autt um árabil. Ætlunin er að húsnæðið verði um 35 þúsund fermetrar þegar umbreytingu þess er lokið.

„Reykjanesklasinn fyrirhugar að koma þar upp „Græna iðngarðinum“ sem hýst getur innlend og erlend fyrirtæki sem þurfa rými fyrir sprotastarf, rannsóknar- og tilraunastarfsemi, þróun, framleiðslu og samsetningu á vörum eða aðstöðu fyrir fiskeldi og ræktun, svo eitthvað sé nefnt,“ segir í fréttatilkynningu.

Græni iðngarðurinn er staðsettur í nokkurra mínútna fjarlægð frá höfninni í Helguvík og Leifsstöð. Húsnæðið er sagt bjóða upp á fjölbreytta möguleika og aðstöðu sem hægt að skipta upp í misstórar einingar sem henta hverju verkefni. Enska heiti Græna iðngarðsins er Iceland Eco-Business Park.

Grænir iðngarðar eru klasar fyrirtækja sem staðsett eru á sameiginlegu svæði. Í tilkynningunni segir að markmið garðanna sé að styrkja samkeppnisstöðu fyrirtækjanna í hringrásarhagkerfinu. Þau fyrirtæki sem hafa áhuga á að koma á fót starfsemi í græna iðngarðinum leitast við að haga starfsemi sinni á þann hátt að minnka úrgang eins og kostur er.

„Klasar og iðngarðar eiga margt sameiginlegt en bæði þessi samfélög hafa orðið til í þeim tilgangi að auka verðmætasköpun, samlegðaráhrif og nýsköpun. Græni iðngarðurinn byggir á svipaðri hugmyndafræði og Íslenski sjávarklasinn hefur beitt á undanförnum áratugum við að leiða saman fólk og fyrirtæki tengda nýsköpun.“

Græni iðngarðurinn og Auðlindagarðurinn á Reykjanesi hyggjast efla samstarf sín í milli. Þá á Græni iðngarðurinn einnig í nánu samstarfi við Kadeco sem er Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar.

Stofnendur Reykjanesklasans eru Kjartan Eiríksson og Þór Sigfússon.

„Með grænum iðngarði skapast tækifæri fyrir fjölda fyrirtækja að nýta sér einstaka aðstöðu og auðlindir Reykjaness. Staðsetning garðsins við alþjóðaflugvöll og höfn skapar líka mikil tækifæri. Við vonum að þessi nýja starfsemi geti einnig eflt enn frekar allt samfélagið í kringum Græna iðngarðinn, aukið fjölbreytni starfa og tækifæra fyrir fólk með ólíka menntun, bakgrunn og þekkingu,“ segir Kjartan Eiríksson.

„Hús Sjávarklasans sem er um 3000 fermetrar að stærð, hefur í röskan áratug boðið frumkvöðlum skrifstofuaðstöðu. Með þessari rösklega tíföldun á aðstöðu opnast tækifæri fyrir frumkvöðla til að fara í mun stærra húsnæði fyrir margháttaða starfsemi og hvers konar framleiðslu,“ segir Þór Sigfússon.