Lyfjafyrirtækið Alvogen hefur tilkynnt um fyrirhuguð kaup á bandaríska lyfjafyrirtækinu County Line. Með kaupunum ætlar Alvogen að styrkja markaðsstöðu sína í Bandaríkjunum og auka við vöruframboð sitt.

Bandaríkin eru stærsti einstaki markaður Alvogen, en samkvæmt fyrirtækinu skapa kaupin á Country line gott tækifæri til áframhaldandi vaxtar í Bandaríkjunum. Árlegar tekjur Country line eru yfir 13 milljarðar króna, en fyrirtækið sérhæfir sig í sölu lyfja sem eru flókin í þróun. Fyrirtækið er í dag með 12 lyf á markaði í Bandarikjunum og níu lyf til viðbótar eru væntanleg á markaðinn. Kaupin eru gerð með fyrirvara bandarískra samkeppnisyfirvalda.

Róbert Wessman forstjóri Alvogen segir að yfirtakan sé góð viðbót fyrir Alvogen:

„Alvogen hefur verið í miklum vexti undanfarin ár og staða okkar á stærsta lyfjamarkaði heims hefur nú styrkst enn frekar. Sérhæfing okkar í Bandaríkjunum liggur í því að þróa og markaðssetja lyf sem eru flókin í þróun en þau lyf hafa oft á tíðum minni samkeppni. Á undanförnum árum höfum við byggt upp sterkt orðspor fyrir áreiðanleika og góða þjónustu á mörkuðum okkar og munum halda því áfram. County Line er framsækið fyrirtæki og lyfjasafn þeirra er góð viðbót við vöruframboð okkar sem mun styðja við frekari vöxt Alvogen á komandi árum.“

Frekari samþjöppun

Að sögn fréttastofu Reuters er yfirtakan áframhald á þeirri þróun sem hefur verið í gangi í lyfjageiranum. Mikil samþjöppun hefur orðið á markaðnum á undanförnum árum. Velta í samrunum og yfirtökum á lyfjamarkaði var sú mesta í sögunni á síðsta ári, en heildar veltan var um 673 milljarðar Bandaríkjadala.