Alvotech og Advanz Pharma tilkynntu í dag að félögin hafi undirritað nýjan samning um framleiðslu og sölu fimm fyrirhugaðra líftæknilyfjahliðstæða í Evrópu. Alvotech mun sjá um þróun og framleiðslu, en Advanz Pharma sér um skráningu, markaðssetningu og sölu í Evrópu.

Advanz Pharma er alþjóðlegt lyfjafyrirtæki með höfuðstöðvar í Bretlandi, sem markaðssetur lyfseðilsskyld lyf, stungu- og innrennslislyf og lyf við sjaldgæfum sjúkdómum.

„Það er ánægjulegt að auka enn frekar samstarfið við Advanz Pharma. Samstarf félaganna byggir á sameiginlegri sýn fyrirtækjanna á nauðsyn þess að auka aðgengi sjúklinga að hagstæðari líftæknilyfjum,“ sagði Róbert Wessman, stjórnarformaður og forstjóri Alvotech.

Samningurinn tekur til fyrirhugaðrar líftæknilyfjahliðstæða við Simponi (golimumab) og Entyvio (vedolizumab), auk þriggja ónefndra fyrirhugaðra líftæknilyfjahliðstæða sem eru á fyrri stigum þróunar. Samkvæmt upplýsingaveitunni IQVIA er samanlögð sala þessara fimm lyfja um 570 milljarðar króna á ári á þeim mörkuðum sem samningurinn nær til.

„Með þessu samstarfi getur Advanz Pharma orðið eitt af leiðandi fyrirtækjum á sviði líftæknilyfjahliðstæða í Evrópu. Þetta er einnig mikilvægt skref í þeirri áætlun Advanz að verða helsti samstarfsaðili í Evrópu til dreifingar og sölu lyfseðilsskyldra lyfja, stungu- og innrennslislyfja og lyfja við sjaldgæfum sjúkdómum,“ sagði Steffen Wagner, forstjóri Advanz Pharma.