Alls 30 háskólamenntaðir raunvísindamenn hafa verið ráðnir til starfa á þessu ári hjá Hátæknisetri systurfyrirtækjanna Alvogen og Alvotech sem nú rís innan Vísindagarða Háskóla Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Búist er við að ráðnir verði að minnsta kosti 20 raunvísindamenn til viðbótar á árinu 2015. Alls hafa um 80 starfsmenn verið ráðnir til systurfyrirtækjanna, frá því Alvogen hóf starfsemi á Íslandi árið 2010.

„Það er ánægjulegt að geta byggt upp starfsemi okkar hér á landi og nýtt íslenska þekkingu við uppbyggingu á alþjóðlegri starfsemi okkar. Þegar ég kom að Alvogen fyrir nær sex árum síðan tilkynntum við um áhuga okkar á að byggja upp starfsemi á Íslandi og að fyrirhugað væri að ráða allt að 20 nýja starfsmenn. Nú höfum við ráðið um 80 starfsmenn sem eru í hópi 2.300 starfsmanna samstæðunnar í 35 löndum. Íslendingar verða í lykilhlutverki við að móta nýtt líftæknifyrirtæki sem við vonumst til að verði í fremstu röð á sínu sviði,“ segir Róbert Wessman, forstjóri Alvogen.

Í nóvember 2013 hófust framkvæmdir við nýtt Hátæknisetur sem verður um 13 þúsund fermetrar að stærð. Innan setursins verður unnið að þróun og framleiðslu líftæknilyfja og áætlað er að húsið verði tekið í notkun í ársbyrjun 2016.

Systurfyrirtækin Alvogen og Alvotech verða bæði með aðstöðu í Hátæknisetrinu. Sex líftæknilyf eru nú í þróun hjá Alvotech í samvinnu við erlenda samstarfsaðila og fyrstu lyf fyrirtækisins eru væntanleg á markað frá árinu 2018 þegar einkaleyfi þeirra renna út.