Aðalfundur Samorku ályktaði að skoða þarf leiðir til einföldunar á flóknu laga- og regluumhverfi orku- og veitufyrirtækja, en dæmi eru um að sama framkvæmdin hafi verið oftar en tuttugu sinnum til umfjöllunar hjá sömu umsagnaraðilum.

Í fréttatilkynningu segir að umræðan um orku- og veitumál einblínir um of á eignarhaldið, efling flutningskerfis raforku er brýnna verkefni en margfalt dýrari framkvæmdir við færslu á loftlínum í jörð, dráttur á greiðslum ríkissjóðs vegna nýrra hitaveitna stefnir að óbreyttu í um 150 milljónir króna á árinu og afar mikilvægt er að íslenskar endurnýjanlegar orkulindir njóti áfram sömu viðurkenningar og þær fengu við gerð Kyoto-bókunarinnar við loftslagssamning Sameinuðu þjóðanna.