Ameribank Inc varð í gær tólfti bandaríski bankinn til að falla í valinn af völdum lánsfjárkreppunnar. Bankinn átti eignir að andvirði 115 milljóna dala og innistæður í honum námu 102 milljónum dala. Reiknað er með að hrunið kosti tryggingasjóð banka (FDIC) um 42 milljónir dala.
OTS (Office of Thrift Supervision) segir banabita Ameribank hafa verið endurfjármögnun lögtekinna fasteigna.
Viðskiptavinir bankans munu geta tekið út úr hraðbönkum og notað debet-kort sín yfir helgina.
FDIC tryggir innistæður upp að 100.000 Bandaríkjadölum og lífeyrissparnað upp að 250.000 dölum. FDIC fylgist nú grannt með 117 bönkum sem eiga í vandræðum, en hverjir þeir eru er ekki gefið upp.
Reuters greindi frá.