Amsterdam skaut London ref fyrir rass í janúar og klifraði upp fyrir bresku höfuðborgina í toppsætið yfir þær borgir með mesta veltu hlutabréfaviðskipta. Nýjar fjármálareglur, vegna útgöngu landsins úr Evrópusambandinu, tóku gildi innan Bretlands á nýju ári og hafði það fyrrgreindar afleiðingar í för með sér, að því er segir í frétt BBC .

Velta hvers viðskiptadags nam að jafnaði um 9,2 milljörðum evra í Amsterdam í janúar sl. en meðalvelta hvers viðskiptadags nam 8,6 milljörðum króna í London á sama tímabili.

Fela þessar nýju Brexit fjármálareglur það í sér að bankar sem staðsettir eru á ESB-svæðinu, og vilja eiga í hlutabréfaviðskiptum, geta ekki stundað viðskipti í gegnum London.