Andrea Róbertsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Félags kvenna í atvinnulífinu að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá FKA. Hún mun taka við starfinu um miðjan þennan mánuð af Hrafnhildi Hafsteinsdóttur sem hefur verið ráðin markaðs- og gæðastjóri Hjallastefnunnar.

Andrea er með MS gráðu frá viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands í mannauðsstjórnun, BA gráðu í félags- og kynjafræði og MA-diplómu í jákvæðri sálfræði. Síðustu ár hefur hún starfað sem framkvæmdastjóri og forstöðumaður hjá Tali og Kaffitári en einnig sem mannauðsstjóri RÚV. Þá starfaði Andrea einnig sem sem verkefnastjóri hjá Hjallastefnunni um tíma og sem ráðgjafi á sviði stjórnunar með fókus á breytingastjórnun, heilsueflingu og græn mál fyrirtækja og stofnana. Þá hefur hún annast fjölmiðlatengsl, almanna- og kynningarmál.

Í tilkynningunni er haft eftir Andreu:

„Ég er full tilhlökkunar að mæta til þjónustu reiðubúin,“ segir Andrea sem mun hefja störf sem framkvæmdastjóri FKA þann 16. október næstkomandi. „Það gustar alltaf ofurkraftur til góðra verka af sterkum hópi ólíkra kvenna sem sækir fram í takt. Það er nákvæmlega þannig sem ég sé FKA fyrir mér. Einstök orka sem léttilega er hægt að tappa á flöskur og flytja út.“