Andrés Ingi Jónsson hefur ákveðið að bjóða sig fram í 3. til 4. sæti á lista VG í Reykjavík í forvali fyrir Alþingiskosningar, sem haldið verður þann 7. mars næstkomandi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Andrési Inga en hann er heimspekingur, átakafræðingur og fyrrum blaðamaður á 24 stundum.

„Ég kem ómengaður og áhugasamur að pólitíska leikborðinu, en stýrist af sterkri sannfæringu, réttsýni og áralöngum áhuga á stjórnmálum,“ segir í tilkynningu frá Andrési Inga.

„Ég tel að kjarninn í stefnu VG – jöfnuður og félagslegt réttlæti – hafi sjaldan átt meira erindi við þjóðina en þessa dagana. Það er mikilvægt að þessum kjarnamálum flokksins sé haldið á lofti á umbyltingatímum – sér í lagi í þeirri nauðsynlegu endurskoðun stjórnskipunar ríkisins sem framundan er.“

Heimasíða Andrésar er http://www.andresingi.is