Andrés Ingi Jónsson, alþingismaður, hefur gengið til liðs við þingflokk Pírata, að því er kemur fram í tilkynningu á Facebook síðu hans .

Andrés Ingi sagði sig úr þingflokki Vinstrihreyfingar græns framboðs undir lok árs 2019 og hafði starfað sem óháður þingmaður þar til nú.

„Ég hef ákveðið að ganga til liðs við þingflokk Pírata. Þetta var ekki einföld ákvörðun og er tekin eftir mikla yfirlegu. Ég vil vera hluti af hóp sem er hægt að treysta til að taka djarfar ákvarðanir og tel að innan þingflokks Pírata muni hugsjónum mínum vera best borgið. Í framhaldinu mun ég gefa kost á mér í prófkjöri Pírata til að sjá hvort grasrótin vilji treysta mér fyrir áframhaldandi verkefnum eftir kosningar,“ segir í tilkynningunni.

Frá því að hann hafi hafið störf sem þingmaður hafi hann alltaf unnið vel með Pírötum á þingi. „Það er sama hvort litið er á aðgerðir í kringum uppreist æru, baráttuna fyrir réttindum hælisleitenda eða almennt samstarf okkar í fastanefndum þingsins - hugmyndafræði okkar hefur átt vel saman.

Sem hluti af þingflokki Pírata gefst mér tækifæri til að vera hluti af hóp sem er í lykilstöðu til að gera samfélagið okkar betra fyrir okkur öll, þátttakandi í hreyfingu sem getur séð til þess að eftir næstu kosningar verði mynduð ríkisstjórn sem nær ekki bara utan um lægsta samnefnara heldur alvöru breytingar í þágu mannréttinda, fólksins í landinu og framtíðarinnar. Á þingi hef ég lagt mikla áherslu á loftslagsmál, eflingu lýðræðis og jafnrétti og veit að á þeim sviðum get ég tekið þátt í að móta sannfærandi og öfluga kosningastefnu Pírata fyrir haustið."

Í tilkynningu þingflokks Pírata vegna málsins segir að flokkurinn hafi samþykkti einróma að bjóða Andrés Inga velkominn í hópinn á þingflokksfundi í morgun. „Andrés Ingi og þingflokkurinn hafa átt í góðu samstarfi, flutt saman fjölda þingmála og unnið náið saman í nefndum þingsins. Með tímanum hefur komið í ljós að um er að ræða náttúrulega bandamenn með margar sameiginlegar áherslur. Andrés er gríðarlega öflugur þingmaður sem hefur áorkað miklu einn síns liðs og er því mikill fengur fyrir þingflokk Pírata. Hann er hugsjónamaður með sterka réttlætiskennd sem þorir að færa rök fyrir stórum hugmyndum. Við lítum því á inngöngu Andrésar í þingflokkinn, sem og flokkinn í heild, sem góðan liðsstyrk fyrir verkefnin framundan,“ segir í tilkynningu Pírata.

„Það er ótrúlega ánægjulegt að fá Andrés Inga til liðs við okkur enda er hann frábær þingmaður, fylginn sér og einstaklega faglegur stjórnmálamaður. Við Píratar og Andrés Ingi höfum alltaf unnið vel saman og stefnum að sama marki hvort sem málin varða gagnsæi, varnir gegn spillingu eða loftslagsmál. Andrés hefur sannað sig sem öflugur talsmaður fyrir umhverfisvernd, jafnrétti og lýðræði og við Píratar erum mjög hreykin að fá jafn öflugan þingmann til okkar," er haft eftir Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur, varaþingflokksformaður Pírata, í tilkynningu flokksins.