CB Holding ehf. sem er í meirihluta eigu Straums-Burðaráss fjárfestingabanka hf., hefur tekið yfir eignarhaldsfélagið WH Holding Ltd. og dótturfyrirtæki þess, þ.m.t. breska knattspyrnufélagið West Ham United.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Straum en þar kemur fram að í ljósi þess góða árangurs sem forstjóri og yfirþjálfari félagsins hafa náð á nýliðinni leiktíð mun CB Holding styðja núverandi framkvæmdarstjórn til áframhaldandi starfa. Fram kemur að það sé ekki ætlun CB Holding að gera breytingar á framkvæmdarstjórn né breyta núverandi stefnu félagsins.   Með hliðsjón af breyttu eignarhaldi hafa formaður og varaformaður stjórnar látið af störfum og hefur Andrew Bernhardt, framkvæmdarstjóri hjá Straumi, verið skipaður stjórnarformaður West Ham.