Andri Guðmundsson var kjörinn nýr aðalmaður í stjórn Fossa markaða hf. á hluthafafundi 6. júlí síðastliðinn. Andri starfaði hjá H.F. Verðbréfum hf. í 10 ár bæði við verðbréfamiðlun og fyrirtækjaráðgjöf. Hann var framkvæmdastjóri H.F. Verðbréfa 2011-2014. Andri hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum og er viðurkenndur ráðgjafi á First North. Þá situr hann í stjórn Viðskiptaráðs Íslands og stjórn sænsk-íslenska viðskiptaráðsins.

Aðrir aðalmenn í stjórn Fossa markaða eru Sigurbjörn Þorkelsson, sem er stjórnarformaður, og Kolbeinn Arinbjarnarson. Varamenn í stjórn eru Magnús Gunnarsson, Anna Þorbjörg Jónsdóttir og Gunnar Egill Egilsson, segir í tilkynningu.

Í síðustu viku fékk Fossar markaðir aðild að hlutabréfa- og skuldabréfamörkuðum Kauphallarinnar. Með aðildinni hafa starfsmenn beinan aðgang að viðskiptakerfi Kauphallarinnar og geta lagt fram kaup- og sölutilboð og tilkynnt um viðskipti með verðbréf fyrir hönd viðskiptavina.