Andri Guðmundsson mun hætta störfum hjá HF Verðbréfum um mánaðamótin, en hann hefur undanfarna mánuði starfað við fyrirtækjaráðgjöf fyrirtækisins. Andri var áður forstjóri HF verðbréfa frá janúar 2011 til síðustu áramóta. Hann flutti í byrjun árs til Stokkhólms, þar sem eiginkona hans var ráðin í stöðu læknis á Danderyd sjúkrahúsinu.

Samkvæmt heimildum VB.is mun Andri taka sæti í stjórn Fossa Markaða á næsta hluthafafundi. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um það ennþá hvenær sá fundur verður haldinn, en samkvæmt heimildum verður það gert innan skamms, eða áður en sumarfrí hefjast fyrir alvöru.