„Þetta er mjög spennandi. Við erum að taka næstu skref til vaxtar og styrkja og bæta samkeppnisstöðuna. Við erum búin að opna ný markaðssvæði, s.s. í Frakklandi þar sem við fljúgum mikið fyrir átta ferðaskrifstofur og mörg verkefni eru í pípunum fyrir árið 2015,“ segir Andri Már Ingólfsson, forstjóri og eigandi Primera Travel Group, móðurfélags Primera Air. Sum verkefnanna segir hann félagið ekki geta unnið eftir þeim takmörkunum um flug sem gilda í Skandinavíu. Af þeim sökum meðal annars þarf að flytja hluta starfsemi fyrirtækisins hér og í Danmörku til Riga í Lettlandi.
Eins og fram kom á VB.is í dag hefur Primera Air stofnað nýtt flugfélag í Lettlandi sem heitir Primera Air Nordic. Stefnt er á að flugrekstur undir merkjum félagsins hefjist í nóvember. Fyrir er Primera Air með danskt flugrekstrarleyfi. Í kjölfarið er ráðgert að hluti starfseminnar hér og í Danmörku verði fluttur til Lettlands með það fyrir augum að samþætta starfsemi Primera Air Scandinavia og Primera Air Nordic. Einhver tilfærsla verður á störfum, að sögn Andra Más. Ekki liggur þó fyrir hversu mikil breytingin verður. Hún ætti að koma í ljós á næstu 12 mánuðum. Á sama tíma hefur verið skipt um forstjóra hjá Primera Air.
Primera Air á og rekur sex Boeing 737-800 og tvær Boeing 737-700. Í skoðun er að bæta einni þotu við flotann, að sögn Andra Más.
Nær engin leiguflugfélög eftir
Spurður að því hvaða takmarkanir standi í vegi fyrir félaginu í Skandinavíu segir hann þær lúta að sögulegum reglum varðandi áhafnir, hvað þær mega vera lengi í burtu frá sinni heimahöfn og öðru slíku sem henti ekki í vaxtarverkefni á borð við það sem framundan er hjá Primera. Hann segir þessar takmarkanir hafa valdið því að nær engin leigufélög séu eftir í Skandinavíu.
„Það er af því að á meðan sum lönd í Evrópu hafa verið að opna þetta, s.s. í Bretlandi, þá er Skandinavía að þrengja þetta,“ segir hann og bendir á að hindranirnar hafi komið skýrt fram í samningaviðræðum við verkalýðsfélög. Þar hafi forsvarsmönnum Primera verið afhentir kjarasamningar SAS. Það sé ekki hægt því Primera sé ekkert líkt SAS. „Við þurfum miklu meiri sveigjanlega,“ segir Andri Már.