Andri Már Kristinsson hefur verið ráðinn til Hugsmiðjunnar ehf. þar sem hann mun starfa sem ráðgjafi í stefnumótun og markaðssetningu á vefnum.

Andri er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og hefur yfir 10 ára reynslu í markaðsmálum. Eftir þrjú ár í markaðsdeild Nýherja hóf Andri störf hjá Google sem sérfræðingur í auglýsingaþjónustu fyrirtækisins, Google AdWords.

Í kjölfarið gerðist hann framkvæmdastjóri vefmarkaðsfyrirtækisins Kansas sem varð hluti af markaðsstofunni Janúar árið 2014. Nú síðast starfaði Andri hjá Landsbankanum þar sem hann var ábyrgur fyrir vefmarkaðssetningu bankans.

Fyrirtæki með 25 starfsmenn

Andri mun ásamt Margeiri Ingólfssyni leiða nýtt teymi innan Hugsmiðjunnar sem mun veita þjónustu í markaðssetningu á netinu og stefnumótun í vef- og markaðsmálum.

Hugsmiðjan er vefstofa sem sérhæfir sig í þróun stafrænna lausna og markaðssetningu á vefnum. Hjá fyrirtækinu starfa 25 einstaklingar með þverfaglega þekkingu á vef- og markaðsmálum.

Sífellt stærra hlutverk stafrænna lausna

„Ég er ánægður að vera kominn til Hugsmiðjunnar og spenntur að taka þátt í þeim verkefnum sem framundan eru,“ er haft eftir Andra í fréttatilkynningu.

„Stafrænar lausnir gegna sífellt stærra hlutverki í daglegu lífi okkar. Við eigum samskipti, leitum, verslum, horfum, bókum og lærum í gegnum hinar ýmsu stafrænu þjónustur.

Ástæðan fyrir þessum miklu breytingum er að þessar þjónustur skapa þægilegri, einfaldari og ánægjulegri upplifun.

Hugsmiðjan hefur mikinn metnað að skapa frábærar upplifanir og verða leiðandi á því sviði en ég trúi því að markaðsmál eigi og muni fyrst og fremst snúast um notendaupplifun í hinum stafræna heimi.“

Efling á teymi fyrir veflausnir

Ragnheiður Þorleifsdóttir, framkvæmdastjóri Hugsmiðjunnar segir framtíðina hjá fyrirtækinu með öflugu starfsfólki á öllum sviðum vef- og markaðsmála.

„Ráðning Andra til Hugsmiðjunnar er liður í efla til muna það teymi sem sinnir stefnumótun og markaðssetningu á vefnum fyrir okkar verðmætustu viðskiptavini,“ segir Ragnheiður.

„Það er mikil eftirspurn eftir þessari þjónustu á markaðnum í dag við erum því virkilega ánægð með liðsaukann.“