Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðar Egils Skallagrímssonar, var kjörinn Markaðsmaður ársins 2015 hjá ÍMARK, samtökum markaðsfólks á Íslandi. Verðlaunin eru veitt þeim einstaklingi, sem þykir hafa sýnt framúrskarandi árangur í markaðsstarfi á líðandi ári.

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka tillkynnti úrslitin en hún var kjörin markaðsmaður ársins í fyrra.

Viðurkenningin er Ölgerðinni og mér mikils virði.  Hún er staðfesting á því faglega og öfluga markaðs- og sölustarfi sem unnið hefur verið á undanförnum árum sem hefur skilað okkur mikilli hlutdeildaraukningu og bættri arðsemi í rekstrinum,“ segir Andri.

„Ég tileinka þessi verðlaun framúrskarandi markaðsdeild og raunar öllu starfsfólki okkar sem hefur unnið þrekvirki á undanförnum árum í að auka sölu og bæta ímynd fyrirtækisins með framúrskarandi vöru og þjónustu.“

Í dómnefnd sátu Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, Einar Einarsson framkvæmdastjóri Gallup, Andrés Jónsson eigandi og stofnandi Góðra samskipta, Bjarni Ólafsson ritstjóri Viðskiptablaðisins, Hjalti Jónsson framkvæmdastjóri Íslensku auglýsingastofunnar, Svanhildur Konráðsdóttir sviðsstjóri menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar, Valgeir Magnússon framkvæmdastjóri Pipar/TBWA, Helga Valfells framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, Dr. Friðrik Larsen lektor í HÍ og formaður stjórnar ÍMARK og Ásta Pétursdóttir framkvæmdastjóri ÍMARK.