Andri Vilhjálmur Sigurðsson hdl.
Andri Vilhjálmur Sigurðsson hdl.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Lögmaðurinn Andri Vilhjálmur Sigurðsson hefur bæst í eigendahóp lögmannsstofunnar Lögmenn Lækjargötu ehf. Andri hefur undanfarin ár starfað sem lögfræðingur hjá Reviva Capital í Lúxemborg.

Hann hafði áður starfað sem lögfræðingur hjá Kaupthing Bank Luxembourg, hjá Kaupþingi banka hf. Í Reykjavík og hjá Samtökum atvinnulífsins.

Andri lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1998 og hlaut réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi árið 1999.