Heldur fleiri eru óánægðir en ánægðir með að sótt hefur verið um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

Þetta kemur fram á vef Samtaka iðnaðarins (SI) í dag. Þá kemur einnig fram að aldrei hafa fleiri sagst andvígir aðild frá því að Samtök iðnaðarins tóku að láta gera kannanir fyrir sig um Evrópumálin.

Um 50% segjast andvígir aðild en um 33% segjast hlynnt. Þá segjast um 17% hvorki hlynnt né andvíg aðild. Könnunin var gerð af Capacent Gallup dagana 25. ágúst til 10. september 2009. Svarhlutfall var 52,3% af handahófsvöldu úrtaki úr þjóðskrá og var úrtakið 1.649 manns.

Þá var einnig spurt: Ef aðild Íslands að Evrópusambandinu (ESB) yrði borin undir þjóðaratkvæði í dag, hvernig telur þú líklegast að þú myndir greiða atkvæði?

Þá kemur í ljós að 61,5% segja líklegt að þeir myndu sennilega eða örugglega greiða atkvæði gegn aðild en 38,5% sennilegt eða öruggt að þeir myndu greiða atkvæði með aðild.

Sjá nánar á vef SI.