Anna Björk Bjarnadóttir verið ráðin framkvæmdastjóri Einstaklingsmarkaðar Símans í stað Katrínar Olgu Jóhannesdóttur sem hefur þegar hafið störf sem framkvæmdastjóri stjórnunarsviðs hjá Skiptum, móðurfélags Símans, segir í fréttatilkynningu.
Anna Björk er með meistaragráðu í stjórnun frá Wharton/TDC. Síðasta árið hefur hún unnið sem stjórnunarráðgjafi hjá Capacent. Áður vann hún m.a. sem forstöðumaður á Einstaklingssviði Símans og sem framkvæmdastjóri þjónustusviðs hjá TDC í Noregi. Anna Björk er gift Tómasi A. Holton kennara og eiga þau tvö börn.