Anna Lea Friðriksdóttir hefur hafið störf sem útgefandi hjá Útgáfuhúsinu Verðandi og Sölku.

Anna Lea var áður verslunar- og sölustjóri Bókabúðar Máls og menningar og Iðu og hefur starfað hjá þeim verslunum síðan 2009. Samhliða því hefur hún verið útgefandi hjá Lesstofunni. Anna Lea er íslenskufræðingur að mennt.

Útgáfuhúsið Verðandi var stofnað á síðasta ári og tók yfir rekstur Sölku sem var stofnuð árið 2000 og hefur gefið út tugi titla á ári undanfarin ár. Áhersla hefur verið á handbækur af ýmsu tagi.

Eigandi útgáfunnar er Dögg Hjaltalín. Áætlað er að útgáfan sendi frá sér um annan tug titla á þessu ári.