Anna Margrét Guðjónsdóttir ráðgjafi og varaþingmaður Samfylkingarinnar var útnefnd ,,Evrópumaður ársins“ fyrir árið 2010 á aðalfundi Evrópusamtakanna sem haldinn var á föstudaginn í síðustu viku. „Anna Margrét hlaut tilnefninguna vegna ötuls starf að Evrópumálum undanfarin misseri," segir í tilkynningu.

Andrés Pétursson fjármála- og skrifstofustjóri var endurkjörinn formaður samtakanna.

Aðrir stjórnarmenn í Evrópusamtökunum eru:

  • Einar Kárason rithöfundur
  • Gunnar Hólmsteinn Ársælsson framhaldsskólakennari
  • Sigrún Gísladóttir, fyrrum skólastjóri og bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ
  • Eva Einarsdóttir borgarfulltrúi Besta flokksins
  • G. Pétur Matthíasson upplýsingafulltrúi

Varamenn:

  • Pétur Snæbjörnsson framkvæmdastjóri
  • Guðmundur Hallgrímsson lyfjafræðingur
  • Sema Erla Serdar stjórnmálafræðingur og M.Sc.nemi