Sjóðastýringarfyrirtækið Júpiter rekstrarfélag, dótturfélag Kviku banka hefur ráðið til sín tvo nýja stjórnendur. Anna Rut Ágústsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður fjármála og rekstrar og Magnús Már Leifsson hefur verið ráðinn yfirlögfræðingur félagsins.

Anna Rut hefur starfað hjá Kviku og forverum bankans frá árinu 2007, síðast sem forstöðumaður á skrifstofu forstjóra og stjórnarmaður í GAMMA Capital Management hf. Áður gegndi hún ýmsum störfum hjá Kviku en frá 2015-2017 var hún forstöðumaður viðskiptatengsla og þar á undan starfaði hún í áhættustýringu

Anna Rut mun hafa yfirumsjón með öllum daglegum rekstri félagsins auk þess sem hún mun leiða samþættingarferli eignastýringar innan samstæðu Kviku inn í Júpíter sem stefnt er á að klára á næstu mánuðum. Hún er með BSc próf í viðskiptafræði og MCF gráðu í fjármálum fyrirtækja frá Háskólanum í Reykjavík og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.

Magnús Már hefur starfað hjá Kviku síðan í september 2016, síðast sem lögmaður á lögfræðisviði bankans. Í störfum sínum fyrir bankann var Magnús m.a. ritari fjármálanefndar bankans, ritari áhættu- endurskoðunar- og starfskjaranefndar auk þess sem hann átti sæti í stjórnum Rekstrarfélags Virðingar hf. og Framtíðarinnar lánasjóði hf. Áður starfaði Magnús Már hjá LOGOS lögmannsþjónustu frá árinu 2013-2016 og þar á undan sinnti hann ýmsum störfum í sjávarútvegi.