Anna Skúladóttir og Páll Erland, starfsmenn Orkuveitu Reykjavíkur, eru komin inn í stjórn Reykjavík Energy Invest, að sögn Hafliða Helgasonar, framkvæmdastjóra samskipta hjá REI. Úr stjórninni víkja þar með Björn Ingi Hrafnsson og Haukur Leósson. Stjórnarfundur var haldinn í REI í gær, fimmtudag, að sögn Hafliða, en engar ákvarðanir voru teknar á fundinum. Hólmsteinn Sigurðsson sat stjórnarfundinn í gær, sem varamaður Páls. REI hefur formlega ekki verið sameinað Geysi Green Energy, en samrunaferlið er í gangi.