Anna Pála Sverrisdóttir, meistaranemi í lögfræði og formaður Unga jafnaðarmanna, sækist eftir 5. sætinu í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík.

„Mitt helsta baráttumál á þingi verður að gera ungu fólki kleift að lifa og starfa á Íslandi í nánustu framtíð,“ segir Anna Pála í tilkynningunni.

„Ég verð ötull talsmaður menntunar og námsmanna og þess að við notum menntakerfið til að koma okkur aftur á flug. Húsnæðismál eru annað lykilatriði fyrir ungt fólk og þar vil ég m.a. nota tækifærið sem gefst núna til að búa til almennilegan leigumarkað. Atvinnuleysi hittir ungt fólk verst fyrir og ég mun berjast fyrir að því verði mætt með sértækum aðgerðum meðan við komum fótunum undir atvinnulífið aftur. Ungum barnafjölskyldum þarf að huga sérstaklega að og lengja fæðingarorlofið um leið og hægt verður. Til lengri tíma er síðan stærsta hagsmunamálið að við göngum í Evrópusambandið því við eigum ekki að sætta okkur við einangrun.“

Anna Pála er fædd 19. september 1983. Hún er að eigin sögn langt komin með masterspróf í lögfræði með sérhæfingu í þjóðarétti og hefur unnið lögfræðistörf á Persónuvernd og þar áður sem blaðamaður á Morgunblaðinu.

Hún var oddviti Röskvu, samtaka félagshyggjufólks við Háskóla Íslands, og á að baki setu í Háskólaráði HÍ og stjórn LÍN auk fjölda annarra félagsstarfa. Í dag er hún formaður Ungra jafnaðarmanna.

Á næstu dögum verður síðan, www.annapala.is , opnuð.