Anna Stefánsdóttir var kjörin formaður Rauða kross Íslands á aðalfundi félagsins í dag.

Anna er hjúkrunarfræðingur að mennt og var ráðin hjúkrunarforstjóri Landspítalans árið 1996 og hjúkrunarforstjóri sameinaðs Landspítala háskólasjúkrahúss árið 2000. Hún hefur setið í stjórn Rauða krossins frá 2002 og verið varaformaður frá 2006.