Anna Þóra Ísfold hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri Félags viðskipta- og hagfræðinga (FVH) og hefur hún hafið störf. Anna Þóra lærði viðskiptafræði við Háskólann í Reykjavík og MSc í alþjóðaviðskiptum og markaðsfræðum við Háskóla Íslands. Auk þess hefur hún nýverið lokið diplómanámi í lýðheilsuvísindum hjá Háskóla Íslands.

Anna Þóra starfaði í níu ár sem framkvæmdastjóri Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda. Síðastliðin ár hefur hún sérhæft sig í ráðgjöf og umsjón samfélagsmiðla fyrir stofnanir og fyrirtæki. Anna Þóra býr jafnframt yfir sérþekkingu á D-vítamíni en MSc. ritgerð hennar fjallaði einmitt um tengsl þekkingar og áhrifavalda D-vítamíns á hegðun fólks að því er segir í fréttatilkynningu um ráðninguna.

Hún er viðurkenndur stjórnarmaður frá Rannsóknarmiðstöð um góða stjórnarhætti og situr auk þess í stjórn Félags kvenna í atvinnulífinu. Anna Þóra er 42 ára, býr í smáíbúðarhverfinu með þremur dætrum sínum á aldrinum þriggja til fimmtán ára, á auk þess 25 ára fósturson.

Hlutverk FVH er að efla kynni og tengsl 1000 félagsmanna, veita þeim hagnýtar upplýsingar sem snerta kjör þeirra og starfsframa. Stuðla að fjölbreyttum tækifærum tengd endurmenntun og fjalla um málefni líðandi stundar og rannsóknir í viðskipta- og hagfræði.