Anna Þorbjörg Jónsdóttir hefur verið ráðin til Fossa markaða hf. og mun leiða uppbyggingu á miðlun erlendra fjárfestinga. Opnun hagkerfisins á komandi misserum mun skapa aukin tækifæri til fjárfestinga á alþjóðlegum mörkuðum. Fossar hafa verið leiðandi þjónustuaðili við erlenda fjárfesta á Íslandi og er félagið nú enn betur í stakk búið til að þjónusta innlenda aðila sem vilja fjárfesta erlendis.

Anna Þorbjörg hefur víðtæka þekkingu og reynslu af alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Hún er einn stofnenda World Financial Desk LLC (WFD), hátækni fjármálafyrirtækis með aðsetur í New York. WFD á viðskipti með bandarísk ríkisskuldabréf og vaxtaafleiður á rafrænum mörkuðum og kauphöllum víða um heim.

Anna Þorbjörg starfaði sem annar tveggja stjórnarformanna félagsins frá stofnun og sem fjárfestingastjóri til ársins 2014. Áður starfaði Anna Þorbjörg sem miðlari hjá Madison Tyler Trading, forvera Virtu Financial, sem er í fararbroddi í rafrænum viðskiptum á heimsvísu. Þar átti hún viðskipti með afleiður, skuldabréf, hlutabréf og gjaldmiðla á mörkuðum um heim allan.

Anna Þorbjörg er með B.Sc. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands, M.A. gráðu í hagfræði frá University of California Los Angeles og M.Sc. gráðu í fjármálastærðfræði fráUniversity of Southern California.