Heildarsala Stofnfisks á lifandi laxahrognum til Chile var á síðasta ári um 40 milljón hrogn að verðmæti um 600 milljónir íslenskra króna.

Sigurður Ingi Jóhannsson, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, átti fund með Pablo Galilea aðstoðarráherra sjávarútvegs og fiskeldismála í Chile á dögunum. Á fundinum ræddu þeir m.a. innflutningsleyfi fyrir sölu á laxahrognum til Chile en fyrirtækið Stofnfiskur hf. er annar  stærsti framleiðandi á lifandi laxahrognum  á heimsvísu.

Á vef ráðuneytisins segir að Stofnfiskur hafi  á undanförnum árum selt lifandi laxahrogn til allra helstu laxaframleiðenda í hinum ýmsu löndum. Velgengni Stofnfisks byggir á heilbrigði laxastofnanna, góðu sjúkdómaeftirliti og síðast en ekki síst markvissum kynbótum, sem stuðla að góðum vexti og heilbrigði fisksins.

Yfirvöld í Chile hertu reglur um innflutning
Á undanförnum mánuðum hafa yfirvöld í Chile hert reglur um innflutning laxahrogna og hafa nú bannað innflutning. Stofnfiskur er eini framleiðandinn á laxahrognum sem enn fær að selja hrogn til Chile, en sú sala byggir á sérstöku leyfi sem byggir á áhættugreiningu yfirvalda í Chile.

Vegna óvissunar sem upp var komin vegna hertra reglna sjúkdómayfirvalda í Chile skrifaði Sigurðir Ingi Jóhannsson sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra yfirvöldum í Chile bréf í júlí sl. Í bréfinu gerði hann m.a. grein fyrir að bann við innflutningi laxahrogna frá Íslandi til Chile væri ekki í samræmi við alþjóðlegar skuldbindinga um viðskipti, sem bæði löndin væru aðilar að.

Í framhaldi af bréfi Sigurðar Inga til yfirvalda í Chile var ákveðið að halda fund á Íslandi og fjalla um málið og var hann haldinn í atvinnuvega-  og nýsköpunarráðuneytinu föstudaginn 16. ágúst sl.