Heildarvelta á skuldabréfamarkaði í mánuðinum var 564 milljarðar og er þetta næst mesta mánaðarvelta frá upphafi (683 milljarðar jan-08).  Það sem af er ári nemur heildarveltan 1.619 milljörðum og er það meiri velta en á þremur fyrstu ársfjórðungum síðasta árs en þá nam heildarveltan 1.592 milljarðar.

Veltumestu bréfin í mánuðinum voru HFF150224 73 milljarðar, HFF150914 68 milljarðar og HFF150644 61 milljarðar, segir í fréttatilkynningu.

Kaupþing Banki var með mestu hlutdeildina á skuldabréfamarkaði eða um 27%, næst kom Glitnir banki með 20,2% hlutdeild og því næst Landsbankinn með 19% hlutdeild. Lítil velta var á hlutabréfamarkaði í mánuðinum eins og fyrri mánuði en veltan nam aðeins 172 milljörðum.

Heildarveltan með hlutabréf á fyrsta ársfjórðungi var 513 milljarðar og nemur veltusamdrátturinn 38% frá sama tímabili í síðasta ári.  Mest viðskipti voru með bréf Glitnis (48 milljarðar), með bréf Kaupþings (39 milljarðar) og með bréf Landsbankans (32 milljarðar). Landsbankinn hækkaði mest eða um 10,5%, því næst kom Kaupþing sem hækkaði um 9,9% í mánuðinum. FL lækkaði mest eða um 33% og Hf. Eimskipafélagið lækkaði um 23% frá seinasta mánuði.

Landsbankinn var með mestu hlutdeildina á hlutabréfamarkaði eða um 33%, næst kom Glitnir banki með 26% hlutdeild og því næst Landsbankinn með 19,3% hlutdeild.

Úrvalsvísitalan sveiflaðist mikið í mánuðinum og var lokagildi hennar 5050,74 stig og hafði hún þá hækkað um 3,36% í mánuðinum en sé litið til áramóta þá hefur vísitalan lækkað um 20,1%.