Netfyrirtækið AOL kaupir vefritið Huffington Post fyrir 315 milljónir dala, jafnvirði um 37 milljarða króna, að því er erlendir miðlar greina frá í dag. Kaupin þykja djörf og tekur AOL þar sterka stöðu með framtíð netfréttasíðna.

Gert er ráð fyrir að kaupum AOL ljúki síðar á þessu ári. Arianna Huffington, stofnandi Huffington Post, mun starfa í stjórnendateymi AOL en greitt er fyrir fréttasíðuna að mestu með peningum. Alls greiðir AOL 300 milljónir dala í reiðufé.

Mánaðarlega heimsækja um 25 milljónir manna Huffington Post .