Umboðsaðili Apple á Íslandi hefur kært Tæknivörur vegna auglýsingar fyrir Samsung-síma, sem hefur fengið mikið áhorf á vefnum. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.  Vill Apple stöðva birtingu auglýsingarinnar og telur hana brjóta gegn reglum um samanburð í auglýsingum.

Í auglýsingunni sést ungur maður reyna að nota rautt epli eins og síma, en eins og gefur að skilja gengur það illa. Það er ekki fyrr en hann skiptir eplinu út fyrir Samsung síma að líf hans breytist til hins betra. Má sjá auglýsinguna og umfjöllun um hana hér .

„Menn hafa ekki mikla kímnigáfu ef þeir láta sér detta í hug að kæra svona," segir Sveinn Tryggvason, framkvæmdastjóri Tæknivara, í samtali við Fréttablaðið.