Bandaríski hátæknirisinn Apple hefur keypt greiningarfyrirtækið Topsy. Ekkert hefur verið gefið upp um kaupverðið. Bandaríska dagblaðið The Wall Street Journal segir verðið í kringum 200 milljónir dala, jafnvirði tæpra 24 milljarða íslenskra króna. Þetta er annað fyrirtækið sem Apple kaupir á stuttum tíma. Í síðustu viku keypti það fyrirtækið PrimeSense, sem hefur þróað tækni sem skynjar hreyfingu. Kaupverðið nam 350 milljónum dala.

Topsy greinir samskipti á samfélagsmiðlinum Twitter og reynir að greina umræðuefnið út frá lykilorðum.

AP-fréttastofan hefur eftir talskonu Apple, að fyrirtækið kaupi lítil fyrirtæki endrum og eins.