Apple mun halda kynningu í dag á nýjum vörum fyrirtækisins. Er orðrómur um að þar verði nýr iPhone 6 kynntur til sögunnar ásamt nýju snjallúri sem fylgst getur með heilsu notenda.

Fyrirtækið hefur ekkert gefið út um hvað muni eiga sér stað á kynningunni. Hins vegar er talið er að nýr iPhone sími verði kynntur og að hann muni búa yfir stærri skjá en eldri útgáfur hans.

Þá er talið að hljómsveitin U2 muni koma fram til þess að kynna nýju plötuna sína ásamt nýjasta búnaði Apple. Kynningin fer fram kl. 17 og verður hægt að fylgjast með henni í beinni á vefsíðu fyrirtækisins .