Eitt ár er liðið frá því að Flugmálastjórnin á Keflavíkurflugvelli tók við öllum rekstri flugvallarins við brottför varnarliðsins. Stjórnvöld hafa á þeim tíma endurskilgreint varnar- og flugvallarsvæðið, staðið fyrir umfangsmikilli varnaræfingu á flugvellinum og lagt grunn að reglubundnum heimsóknum herflugvéla til varnarstarfa.

Færsla á verkefnum frá varnarliðinu til Flugmálastjórnarinnar á Keflavíkurflugvelli tókst í alla staði mjög vel. Umsvif flugmálastjórnarinnar jukust stórlega en starfsmannafjöldi nærri þrefaldaðist á einni nóttu. Flugmálastjórnin á Keflavíkurflugvelli annast rekstur flugvallarins og flugleiðsöguþjónustu og fer með stjórnsýsluvald á flugvellinum, skipulagsmál, framkvæmdir og þjónustu á sveitarstjórnarstigi og gefur út starfsleyfi fyrir flugtengda starfsemi.

Rekstur Keflavíkurflugvallar er í örum vexti. Flugumferð eykst ár frá ári og var liðið ár metár og farþegafjöldi fór í fyrsta sinn yfir tvær milljónir. Farþegafjöldi hefur tvöfaldast á síðustu tíu árum og flugrekstrar- og þjónustuaðilar spá sambærilegri aukningu á komandi árum. Þá bætast nýir flugrekstraraðilar í hóp þeirra sem gera út flugvélar eða kjósa að hafa viðkomu á Keflavíkurflugvelli. Lendingum í almennu gjaldskyldu flugi fjölgaði um rúm níu prósent á síðasta ári. Heildarvelta Flugmálastjórnarinnar á Keflavíkurflugvelli á þessu fyrsta ári sem heildarrekstur vallarins er á hennar hendi er áætluð tæplega 2,7 milljarðar króna.

Stjórnvöld vinna nú að því að færa rekstur flugvallarins frá utanríkisráðuneyti til samgönguráðuneytis í árslok og fyrirhugað er að sameina Flugmálastjórnina á Keflavíkurflugvelli og Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf. í eitt opinbert félag. Með því verði stuðlað að sjálfsbærum rekstri og að tekjur nýtist í uppbyggingu flugvallarins. Jafnframt yrðu þjóðréttarlegar skuldbindingar á sviði öryggis og varnarmála uppfylltar.

Björn Ingi Knútsson flugvallarstjóri segir stjórnendur og starfsmenn Keflavíkurflugvallar hafa gengið ötullega fram og sameining og endurskipun verkefna hafa verið hnökralaus. ?Við erum reiðubúin að takast á við ný verkefni vegna fyrirhugaðra rekstrarbreytinga. Sérþekking og fagmennska eru grundvallaratriði í flugvallarrekstri.?