Árangurslaus fjárnám jukust um 62% milli áranna 2009 og 2010 samkvæmt upplýsingum frá Creditinfo. Árið 2010 voru 3.818 árangurslaus fjárnám en 2.356 árið 2009.

Árangurslaus fjárnám eru talin sýna frekar en gjaldþrot vanda lítilla og meðalstjórra fyrirtækja þar sem lítið eða ekkert er til skiptanna. Gjaldþrot árið 2010 voru 982 en 910 árið 2009. Samtals eru 32.565 fyrirtæki á Hlutafélagaskrá en samtals eru 5.921 á vanskilaskrá.