Á miðvikudag eru 20 ár liðin frá opnun Árbæjarlaugar. „Laugin var og er ein allra glæsilegasta laug borgarinnar með stórkostlegu útsýni yfir Elliðaárdalinn,“ segir Guðrún Arna Gylfadóttir forstöðukona laugarinnar.

Í tilefni 20 ára afmælis Árbæjarlaugar er gestum boðið ókeypis í sund ásamt því að þiggja léttar veitingar.  Heildarfjöldi heimsókna á ári er um 300 þúsund. „Borgarbúar tóku nýju lauginni vel og gera enn,“ segir Guðrún Arna.

Síðustu ár hefur verið hlúð að Árbæjarlaug. Nýr nuddpottur var settur upp fyrir tveimur árum með tilheyrandi stýrikerfi. Eimbaði var einnig komið upp, auk þess sem ráðist var í úrbætur vegna ferlimálum.

Árbæjarlaug stendur við útivistarsvæði Reykvíkinga í Elliðaárdalnum með aðkomu um Fylkisveg. Bygging sundlaugarinnar hófst árið 1991 og er hvolfþaki úr gleri yfir innilaug og innigarði einkennandi fyrir hana.  Útisundlaugin er 25 metrar og á útisvæði eru iðulaugum, heitir pottum og leiktæki.  Arkitektastofan Úti og inni sf. sá um hönnun en hönnunar- og byggingarstjórn var í höndum byggingardeildar borgarverkfræðings. Byggingakostnaður vegna Árbæjarlaugar fyrir 20 árum var um 630 milljónir króna.