Micro ehf í Hafnarfirði hefur undirritað samning við Arctic Fish ehf um sölu, framleiðslu og uppsetningu á flokkunar- og pökkunarlínu fyrir nýtt laxasláturhús Arctic Fish sem er að rísa í Bolungarvík. Kerfið byggir á hönnun og hugviti frá Micro og er eitt afkastamesta sem sett hefur verið upp hér á landi, að því er kemur fram í fréttatilkynningu. Samningur um verkefnið var undirritaður á Íslensku sjávarútvegssýningunni.

Stefnt er að því að hefja uppsetningu á búnaðinum í febrúar á næsta ár og að hann verði tekinn í notkun á fyrsta ársfjórðungi 2023 þegar hin nýja aðstaða Arctic Fish verður opnuð.

Mikilvægur samningur

Gunnar Óli Sölvason, framkvæmdastjóri Micro, segir í tilefni viðskiptanna:

„Þetta er afar mikilvægur samningur fyrir okkur og staðfestir að við erum í fremstu röð þegar kemur að hönnun og framleiðslu á flokkunar og pökkunarkerfum fyrir heilan fisk. Það er mikil viðurkenning fyrir Micro að hafa orðið hlutskarpastir í útboði sem Arctic fish stóð fyrir. Þetta er viðamikið verkefni og miklar kröfur sem gerðar eru til flokkunar á heilum fiski og pökkun. Kröfur um rekjanleika og að kerfið sé þrifvnænt. Það er mikil hugbúnaðarvinna að baki þessari hönnun og mun hún nýtast við fjölmörg önnur verkefni sem við erum með í pípunum. Fyrirtækið Micro hefur tekið mörg og stór skref upp á síðkastið og það er frábært að fyrsti samningurinn skuli vera í höfn. Það er staðfesting á að við erum að réttri leið.“

Stein Ove Tveiten forstjóri Arctic Fish, segir að búnaðurinn frá Micro sé afskaplega spennandi og muni hjálpa fyrirtækinu til að auka arðsemi.

„Mikil tækniþróun hefur orðið á þessu sviði á síðustu árum og er ljóst að þar er Micro í fremstu röð. Við fögnum þessum samningi þar sem mun tryggja mikil afköst í nýja laxasláturhúsinu sem nú er í byggingu í Bolungarvík. Laxaslátrun er mikilvægur þáttur í virðiskeðju okkar og því áríðandi að sá búnaður sem þar verður settur upp sé afkastamikill og öflugur. Þar hefur Micro staðist allar kröfur sem við gerum.“

Fiskur fær gæðamerki

Kerfið frá Micro byggir á því að laxinn er fluttur frá kælitanki að innmötunnarstöð þar sem hann er gæðametinn. Hver fiskur fær gæðamerki sem fylgir honum í gegnum allt kerfið. Laxinn fer svo að vigtareiningu, þar sem þyngdin bætist við gæðamerkið. Laxinn er flokkaður í sjálfvirkum pökkunarflokkara, eftir gæðum og þyngd og búnir eru til skammtar. Pökkunarflokkarinn setur skammtinn í kassa sem einnig hefur verið vigtaður inn í kerfið. Kassinn fær límmiða með öllum upplýsingum um vöruna. Að lokum fær hver kassi vigtaðan ísskammt, áður honum er lokað. Við þetta bætist að kerfið er mjög þrifvænt.

Lykilstarfsfólk Arctic Fish og Micro glöddust eftir að samningurinn var frágenginn.