Á starfsmannafundi Arctic Odda á Flateyri í dag komu fram áform félagsins um að hætta vinnslu á hefðbundnum sjávarafla og einbeita sér alfarið að eldisafurðum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu.

Arctic Oddi leitar eftir kaupendum eða samstarfsaðilum vegna bolfiskvinnslu félagsins á Flateyri. Fram kemur í tilkynningunni að félagið hafi stundað fiskvinnslu á Flateyri undanfarin þrjú ár þar sem bæði hefur verið vinnsla á hefðbundnum sjávarafla og eldisafurðum og hafi starfsmenn að jafnaði verið um þrjátíu. Fyrirtækið hafi á undanförnum árum byggt upp sérhæfða eldisvinnslu í samstarfi við systurfélag sitt, Dýrfisk.

Dýrfiskur hefur í dag leyfi til þess að ala allt að tvö þúsund tonn af regnbogasilungi og laxi í Dýrafirði en hægt hefur gengið að fá aukningu eldisleyfa sem forsenda þess að byggja þar upp arðbæran rekstur. Eldisferlið sjálft frá klaki til fullvinnslu afurða er hátt í þrjú ár og því er mikilvægt að mati félagsins að uppbygging og staðfesting eldisleyfa haldist í hendur svo hægt sé að tryggja atvinnuöryggi og uppbyggingu starfseminnar.

Samhliða árstíðabundinni vinnslu á eldisfiski hefur Arctic Oddi haldið út heilsársstarfsemi með vinnslu á þorski, steinbít, makríl og fleiri sjávarafurðum. Sú vinnsla hefur hingað til verið rekin með tapi og hefur fyrirtækið því tekið ákvörðun um að hætta vinnslu á hefðbundnum sjávarafla.

Arctic Oddi mun því aðeins halda eftir kjarnastarfseminni sem er vinnsla á eldisafurðum. Verður sú framleiðsla árstíðabundin á meðan verið er að byggja upp og tryggja frekari eldisleyfi. Félagið leitar því nú eftir kaupendum eða samstarfsaðilum á bolfiskvinnslu félagsins.