Arctica Finance hagnaðist um 188 milljónir króna í fyrra, sem er 15 milljónum meiri hagnaður en árið á undan. Tekjur félagsins námu 702 milljónum króna og handbært fé frá rekstri var 254 milljónir.

Eignir Arctica Finance námu 724 milljónum og eigið fé 471 milljón króna við síðustu áramót. Félagið greiddi hluthöfum sínum 333 milljónir króna í arð í fyrra.