Árdís Ethel Hrafnsdóttir hefur verið ráðin regluvörður Eikar fasteignafélags. Rósa Hjartardóttir, fráfarandi regluvörður félagsins, verður staðgengill regluvarðar.

Árdís Ethel er lögfræðingur félagsins og hefur gegnt því starfi frá byrjun ársins. Áður starfaði hún sem lögfræðingur fasteignafélagsins SMI ehf. Hún er með LL.M. gráðu frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð og B.Sc. gráðu í viðskiptalögfræði frá Háskólanum á Bifröst.

Árdís mun heyra undir forstjóra og starfa með stjórn félagsins, en hún situr jafnframt í stjórnum dótturfélaga Eikar.