Afkoma Arion banka á öðrum ársfjórðungi nam 4,9 milljörðum króna, samanborið við 3,1 milljarð árið áður, og reiknuð arðsemi á ársgrundvelli var 10,5%. Afkoma á fyrsta ársfjórðungi ársins nam 2,2 milljörðum.

Í tilkynningu bankans segir að afkoman sé umtalsvert umfram það sem spár greiningaraðila höfðu gert ráð fyrir, en þær eru aðgengilegar á fjárfestatengslavef hans . Jákvæð þróun markaða á tímabilinu setur mark sitt á uppgjörið en hreinar fjármunatekjur eru jákvæðar um 2,7 milljarða króna.

Niðurfærsla útlána á tímabilinu nemur tæpum einum milljarði króna, sem er veruleg lækkun frá fyrsta fjórðungi og rekstraráhrif félaga til sölu eru óveruleg á fjórðungnum.

„Rétt er að taka fram að áfram er umtalsverð óvissa í starfsumhverfi bankans og þá fyrst og fremst tengd þróun COVID-19 faraldursins og þeim áhrifum sem faraldurinn kann að hafa á íslenskt efnahagslíf,“ segir í tilkynningunni.

„Sú óvissa snýr fyrst og fremst að þróun eignasafns bankans svo sem útlánasafns og verðbréfastöðu. Fjárhagslegur styrkur Arion banka er varðar eigið fé og lausafé er áfram mjög mikill sem auðveldar bankanum að takast á við óvenjulegar aðstæður.“