Sænska flugfélagið FlyMe Europe, sem er að miklu leyti í eigu eignarhaldsfélagsins Fons, hefur ákveðið að halda áfram yfirtöku á Lithuanian Airlines, en áreiðanleikakönnun á félaginu hefur ekki fullkomlega staðist væntingar kaupendanna, sagði Frederik Skanselid, forstjóri FlyMe, í samtali við Viðskiptablaðið.
Kaupin voru gerð með fyrirvara um að niðurstöður áreiðanleikakönnunar stæðust kröfur kaupendanna.
Áreiðanleikakönnuninni hefur verið framlengt til 15. maí en henni átti þegar að vera lokið. Skanselid sagði ástæðuna vera þá að meiri óreiða er í bókhaldi félagsins en búist var við í fyrstu. Hann tók fram að FlyMe myndi ekki hætta við yfirtökuna, og sagði nýlegan samning félagsins um að leigja vél af Lithuanian Airlines í eitt ár.
"Vélin er þegar farin að fljúga fyrir FlyMe, undir merkjum FlyMe," sagði Skanselid. "Það ætti að gefa til kynna að við erum ekki hættir við."
Eignarhaldsfélagið Fons er í eigu Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar. Félagið er stærsti hluthafinn í FlyMe, með rúmlega 20% hlut.
FlyMe greindi frá því í síðasta mánuði að félagið hefði samþykkt að kaupa Lithuanian Airlines. FlyMe sagði að stærsti eigandi sinn, eignarhaldsfélagið Fons, hefði samið um að gera kauptilboð í Lithuanian Airlines þar sem Fons gerist áskrifandi að hlutabréfum í félaginu í lokuðu hlutafjárútboði.
Með því að skrá sig fyrir bréfunum mun Fons eignast 33% hlut í Lithuanian Airlines. FlyMe mun hafa rétt á því að ráða forstjóra, stjórnarformann og skipa meirihluta stjórnar Lithuanian Airlines. Einnig hefur félagið samið um kauprétt að 100% hlut í Lithuanian Airlines fyrir 25. febrúar árið 2009.
Markaðshlutdeild Lithuanian Airlines er 40% á litháenska flugmarkaðnum og það vinna um 580 manns hjá félaginu.