Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Baugs hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna þeirra umræða sem skapast hefur um helgina vegna orða hans um skuldaálag bankanna.

Yfirlýsingin frá Jóni Ásgeiri hljóðar svo:

„Vegna orða minna um hátt skuldaálag bankanna í Markaðnum sl föstudag hefur gætt þess misskilnings að ég persónulega telji bankana í slæmum málum sem er rangt.

Hið rétta er að miðað við það skuldaálag sem krafist er af íslenskum bönkum virðist endurspeglast sú skoðun erlendra fjármálastofnana að staða þeirra sé slæm.  Það mat er fjarri lagi og skuldaálagið er alltof hátt miðað við raunverulega stöðu þeirra og ósanngjarnt.

Ég er þeirrar skoðunar að nauðsynlegt sé að horfa á það sem ógn við stöðugleika á Íslandi að skuldaálag banka haldist hátt til lengri tíma og því nauðsynlegt að stjórnvöld og atvinnulífið taki höndum saman til að breyta viðhorfi til Íslands erlendis. Þá er rétt að undirstrika þá skoðun mína að skoða eigi aðild að ESB til viðhalda þeim blóma sem hefur verið í íslensku atvinnulífi um langt skeið.

Þetta tel ég rétt og nauðsynlegt að árétta og koma á framfæri.

Virðingarfyllst,

Jón Ásgeir Jóhannesson"