Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu í vikunni sem leið milli jóla og nýárs var 953 milljónir króna og jókst verulega milli vikna samkvæmt upplýsingum frá Fasteignaskrá ríkisins (áður Fasteignamati ríkisins) en rétt er þó að hafa í huga að síðasta nú einstaklega róleg þar sem áramótin gengu í garð.

Velta á fasteignamarkaði var í vikunni þar á undan um 270 milljónir króna en meðalvelta á viku á síðasta ári var rúmir 2,1 milljarðar. Þó er meðalvelta síðustu þrjár vikur aðeins um 680 milljónir en lítil hreyfing hefur verið á fasteignamarkaði í desember.

Á myndinni hér til hliðar má sjá breytingu á fjögurra vikna meðalveltu á milli ára sem hefur minnkað um tæp 80% milli ára. Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu fjögurra vikna og breytinga á henni milli ára.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga var 35 í vikunni sem leið en 13 samningum var þinglýst í vikunni þar áður. Að meðaltali var 66 samningum þinglýst á viku á síðasta ári.

Meðalupphæð á hvern samning var í vikunni 27,2 milljónir króna og hækkar verulega milli vikna eða um rúmar sex milljónir króna. Þetta er þó enn undir meðaltali en meðalupphæð á hvern samning frá síðustu áramótum eru tæpar 32 milljón krónur.

Á ársgrundvelli hefur velta á fasteignamarkaði dregist saman um 71% og gefur það heildstæðari mynd af fasteignamarkaði. Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.