Ari Edwald, forstjóri 365 miðla, mun flytja innan skamms á Laufásveg 69 ásamt sambýliskonu sinni.

Frá þessu er greint í Fréttatímanum í dag en Laufásvegur 69 var áður í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, fyrrv. forstjóra Baugs, en er nú í eigu móður hans, Ásu Karenar Ásgeirsdóttur.

Ingibjörg Pálmadóttir, eiginkona Jóns Ásgeirs, er sem kunnugt er stærsti hluthafinn í 365 miðlum.

Fram kemur í frétt Fréttatímans að iðnaðarmenn vinni nú hörðum höndum að því að gera upp húsið áður en Ari flytur inn.